Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 15:31
Rock skammaði Woods á hringnum í gær
Skemmtilegt atvik átti sér stað á lokahringnum í Abu Dhabi HSBC Open mótinu sem lauk í gær á Evrópumótaröðinni. Á 10. teig hækkaði Rock róminn og bað vallarvörð um að vera hljóður á meðan hann undirbjó sig fyrir að slá. Það sem Rock áttaði sig hins vegar ekki á að það var sjálfur Tiger Woods sem hafði valdið óhljóðunum fyrir golfhöggið hjá Rock.
„Það voru tveir vallarverðir sem höfðu fært sig til og valdið hávaða. Ég var tilbúinn til að slá þegar ég heyrði sama hljóðið aftur og gerði ráð fyrir því að það væri sami einstaklingurinn sem olli því. Ég lét hann því heyra það,“ segir Rock sem á teignum sagði nákvæmlega: „Stattu kyrr, takk fyrir.“
Það var hins vegar Tiger Woods sem olli þessum hljóðum sem trufluðu Rock. „Tiger hló bara af þessu. Ég hefði kannski ekki átt að segja þetta,“ sagði Rock í léttum dúr.