Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 07:15
Golfkerran hringir þegar leitartíminn er úti
Motocaddy fyrirtækið sem framleiðir golfkerrur hefur kynnt nýja kerru sem á að hjálpa kylfingum við að flýta leik. Meðal nýjunga sem er á nýju S3 Pro kerrunni er að hægt er að smella á einn hnapp þegar leit á týndum bolta hefst og pípar kerrann þegar leitartíminn er úti.
Samkvæmt reglu 27a þá hefur kylfingur fimm mínútur til að finna boltann sinn eftir að leit hefst. Eigandi boltans er skyldugur til að taka tímann frá því að leit hefst en vandamálið í gegnum tíðina hefur verið að það gera fæstir. Þessi nýung hjá Motocaddy ætti því að hjálpa við að passa að kylfingar virði tímamörk og þannig flýti leik.
„Þessar nýjungar gera S3 Pro kerruna að skyldueign fyrir kylfinga,“ segir Tony Webb, framkvæmdastjóri Motocaddy. Þeir kylfingar sem ekki hyggjast fjárfesta í þessari nýju golfkerru er bent á að í flestum farsímum er skeiðklukka sem einnig er hægt að nota til að marka upphaf og lok leitar að golfbolta.