GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 13:54

Stefán Már í góðri stöðu í Tyrklandi - Þórður úr leik


Stefán Már Stefánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í 8. sæti fyrir lokahringinn á Sueno Dunes Classic mótinu sem fram fer í Tyrklandi á þýsku EPD-mótaröðinni. Stefán lék annan hringinn í mótinu á 68 höggum eða einu höggi undir pari og er samtals á tveimur höggum undir pari í mótinu.

Hann er aðeins þremur höggum á eftir Tiago Cruz frá Portúgal sem leiðir mótið á samtals fimm höggum undir pari. Stefán fékk þrjá fugla og tvo skolla á hringnum í dag. Jafnt er í toppbaráttunni í mótinu en Stefán gæti blandað sér í baráttuna um sigurinn í mótinu með góðum hring á morgun.

Þórður Rafn Gissurarson úr GR er úr leik í mótinu en honum mistókst að komast í gegnum niðurskurðinn. Um 40 efstu kylfingarnir í mótinu komust áfram í gegnum niðurskurðinn og varð Þórður í 44. sæti á samtals fimm höggum yfir pari. Hann var einu höggi frá því að komast áfram. Hann fékk tvo fugla í dag, einn skolla og tvo tvöfalda skolla. Lokahringurinn í mótinu fer fram á morgun.

Staðan í mótinu

Myndir/Kylfingur.is