Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 13:10
GolfTV: Slær 270 metra með pútter
Kanadíska sleggjan Jamie Sadlowski hefur tvisvar unnið keppnina högglengsti kylfingur heims og getur slegið um 400 metra með dræver. Hann er ótrúlega högglangur og en getur einnig verið nokkuð höggvís þrátt fyrir að beita miklum kröftum í högg sín.
Hann er með boltahraða upp á 218 mph en sem dæmi má nefna að Tiger Woods er með er með 179 mph. Sadlowski segir að það skipti þó ekki öllu máli heldur telji mikið að hitta boltann rétt.
„Það skiptir ekki máli hversu hratt þú sveiflar kylfunni, ef þú hittir ekki boltann á miðjan höggflötinn þá nærðu ekki hámarksárangri. Höggslátturinn skiptir miklu máli.“
Hér að neðan má sjá myndband af þessari sleggju sem slær um 270 metra með pútter!