Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 12:30
Clarke lætur kylfusveininn fjúka
N-Írinn Darren Clarke hefur rekið kylfusveininn John Mulrooney en saman unnu þeir Opna breska meistaramótið síðasta sumar. Clarke hefur hins vegar gengið illa frá sigrinum á Royal St. George's vellinum og lék hann á 81 höggi á föstudag í Abu Dhabi HSBC Championship mótinu sem er hans versti hringur í fimm ár.
Mulrooney hefur starfað með Clarke frá því í maí á síðasta ári og unnu þeir tvö mót saman. Litlu munaði að Clarke hefði rekið Mulrooney viku fyrir Opna breska síðasta sumar en þeir rifust á miðjum hring á Opna skoska mótinu. Þeim greindi aftur á milli í Grand Slam Championship mótinu á Bermúda og líklega hefur slæmi hringurinn á föstudag verið kornið sem fyllti mælinn.
Clarke leitar nú af nýjum kylfusveini en telja má líklegt að margir vilja taka við pokanum hjá þessum reynda og vinsæla kylfingi.