GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 12:15

Rock þýtur upp heimslistann - Tiger í 17. sæti


Englendingurinn Robert Rock fer upp í 55. sæti á heimslistanum eftir sigurinn sinn á Abu Dhabi HSBC Championship mótinu sem lauk í gær á Evrópumótaröðinni. Rock var í 117. sæti fyrir vikuna og á nú góðan möguleika á að tryggja sér keppnisrétt í Masters mótinu sem fram fer í apríl. Hann fékk einnig keppnisrétt í Heimsmótinu í holukeppni sem fram fer í febrúar.

Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker vinnur sig upp í topp-20 á heimslistanum í fyrsta sinn eftir ótrúlegan sigur sinn á Farmers Insurance Open mótinu sem lauk í gær á Torrey Pines vellinum á PGA-mótaröðinni. Hann fer úr 33. sæti í 15. sæti eftir góðan árangur um helgina.

Breytingar verða á meðal efstu kylfinga á heimslistanum. Rory McIlroy fer upp í annað sæti listans eftir að hafa orðið í öðru sæti í Abu Dhabi. Hann fer upp fyrir Lee Westwood. Tiger Woods er einnig á uppleið á listanum og er nú í 17. sæti eftir að hafa orðið þriðji í Abu Dhabi.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1. Luke Donald 9.75 stig
2. Rory McIlroy 7.98
3. Lee Westwood 7.58
4. Martin Kaymer 6.08
5 Steve Stricker 5.84
6. Webb Simpson 5.23
7. Adam Scott 5.16
8. Charl Schwartzel 5.07
9. Dustin Johnson 4.89
10. Jason Day 4.75
11. Graeme McDowell 4.69
12. Matt Kuchar 4.55
13. KJ Choi 4.36
14. Nick Watney 4.36
15. Brandt Snedeker 4.04
16. Phil Mickelson 3.89
17. Tiger Woods 3.84
18. Sergio Garcia 3.83
19. Hunter Mahan 3.77
20. Justin Rose 3.73

Hér má sjá heimlistann í heild sinni