Hleð inn spilara...
Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 07:03
Ótrúlegt klúður hjá Stanley - Þriðji sigur Snedeker
Bandaríski kylfingurinn Brandt Snedeker vann ótrúlegan sigur á Farmers Insurance Open mótinu sem lauk í gærkvöld á PGA-mótaröðinni. Snedeker hafði betur gegn landa sínum Kyle Stanley á annarri holu í bráðabana um sigurinn en báðir léku þeir samtals á 16 höggum undir pari í mótinu.
Stanley kastaði hreinlega frá sér sigrinum með eftirminnilegum hætti og margir myndu ætla að þetta væri eitt af klúðrum sögunnar á PGA-mótaröðinni. Hann var á tímabili með sjö högga forystu á lokahringnum og hafði þriggja högga forystu á Snedeker þegar hann kom á 18. teig. Stanley tók enga áhættu og lagði upp á þessari par-5 holu. Þriðja högg hans misheppnaðist hins vegar þegar boltinn hans spann af flötinni og út í vatn og því varð Stanley að taka víti.
Stanley var kominn inn á flöt í fimm höggum og þurfti að tvípútta til að ná sínum fyrsta sigri á PGA-mótaröðinni. Hann missti stutt pútt fyrir sigrinum og þurfti því að fara í bráðabana við Snedeker eftir þrípútt. Ótrúlegar sviptingar. Snedeker hafði að lokum betur á annarri holu í bráðabana með góðu pari á meðan Stanley þurfti að sætta sig skolla og annað sætið í mótinu.
Ömurlegur endir á mótinu hjá hinum 24 ára Stanley sem hafði sigurinn í hendi sér nær allan lokahringinn. Snedeker fagnaði hins vegar sínum þriðja sigri á PGA-mótaröðinni og er þetta í annað sinn sem hann vinnur í bráðabana. John Rollins varð í þriðja sæti á 14 höggum undir pari. Þeir Bill Haas og Cameron Tringale urðu svo jafnir í 4. sæti á tólf höggum undir pari. Fyrir sigurinn fékk Snedeker um 122 milljónir króna í sinn hlut.
Lokastaðan í mótinu
