Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 08:20

Ko í sögubækurnar - Yngsti sigurvegarinn frá upphafi


Lydia Ko, 14 ára gömul stúlka frá Nýja-Sjálandi, varð um helgina yngsti kylfingurinn til að vinna atvinnumannamót þegar hún fór með sigur af hólmi í New South Wales Open mótinu sem fram fór í Nýja-Sjálandi.

Hún sló fyrra metið sem var í eigu Japanans Ryo Ishikawa en hann var 15 ára og átta mánaða gamall þegar hann vann mót á japönsku mótaröðinni. Amy Yang var yngsta konan til að vinna atvinnumannamót þegar hún var 16 ára og 192 daga gömul.

Að vera hluti af sögunni er ótrúlegt. Það er eitthvað sem maður afrekar ekki með að smella fingri. Dræverinn og járnin voru mjög góð í þessu móti og svo púttaði ég ágætlega,“ sagði Ko sem er besta áhugakona heims.

Ég spila aðallega í áhugamannamótum en dagskráin hjá mér verður nokkuð strembinn næstu mánuði.“ Ko hyggst jafnframt leika á atvinnumótum á Evrópumótaröð kvenna sem fram fara í Ástralíu á næstunni.