Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 09:22
Kylfingar á stjá í þíðunni á Húsatóftavelli
Nokkrir kylfingar úr Grindavík nýttu sér hlýindi helgarinnar til að skella sér í golf á Húsatóftavelli í gær. Blaðamaður Kylfings.is átti leið hjá og tók meðfylgjandi myndir af vellinum sem lítur vel út þrátt fyrir mikið fannfergi að undanförnu. Fínasta veður var í Grindavík í gær og því stukku kylfingar á tækifærið að grípa í kylfurnar.
Opið er fyrir félagsmenn GG á Húsatóftavelli en leikið er inn á vetrarflatir. Sumarflatirnar líta vel út og hefur það vafalaust hjálpað að fannfergi hefur verið yfir flötunum lengst af í vetur sem hafa hlíft þeim fyrir köldum norðanvindum.
Snjór er að mestu leyti bráðnaður á vellinum og má búast við að hann verði allur farinn innan skamms en áframhaldandi hlýindum er spáð næstu daga á suðvesturhorni landsins. Það styttist jafnvel í það að fyrstu vetrarmót ársins fari fram en undanfarin ár hafa farið fram vetrarmót á þessum árstíma, t.d. í Sandgerði og á Hólmsvelli í Leiru.

Snjórinn er ennþá til staðar á Húsatóftavelli en búast má við því að hann hverfi á næstu dögum.

Myndir/Kylfingur.is