GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 29. janúar 2012 | 17:06

GolfTV: Samantekt frá lokahringnum í Abu Dhabi


Englendingurinn Robert Rock sýndi stáltaugar á lokahringnum þegar hann fór með sigur af hólmi í Abu Dhabi HSBC Championship mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni. Hann lék mjög vel og fagnaði verskulduðum sigri í lok dags.

Rock lék með Tiger Woods á lokahringnum og voru þeir jafnir fyrir lokahringinn. Margir héldu e.t.v. að hann myndi brotna undan þeirri pressu sem fylgir því að leika með Woods en Rock lék afar vel og varð að lokum tveimur höggum betri en Woods sem varð að sætta sig við þriðja sætið. N-Írinn Rory McIlroy varð í öðru sæti, höggi á eftir Rock.

Hér að ofan má sjá samantekt frá lokahringnum í Abu Dhabi sem var nokkuð skemmtilegur áhorfs. Athygli vakti hve illa Woods sló í dag en hann hitti aðeins tvær brautir af fjórtán úr teighöggum sínum og varð aðeins með sex flatir í tilætluðum höggfjölda. Það verður að segjast að það var nokkuð vel af sér vikið hjá Woods að leika á pari miðað við sláttinn í dag.


Robert Rock með sigurlaunin eftir sigur sinn á Abu Dhabi Championship mótinu í dag.