Hleð inn spilara...
Fréttir | sunnudagur 29. janúar 2012 | 16:45
GolfTV: Ásinn hjá McDowell í dag
Norður-Írinn Graeme McDowell hafði ástæðu til að gleðjast eftir að hann fór holu í höggi á 12. holu á Abu Dhabi HSBC Championship mótinu sem lauk í dag á Evrópumótaröðinni. McDowell varð þriðji kylfingurinn til að fara holu í höggi á 12. holunni í mótinu en áður höfðu Spánverjarnir Sergio Garcia og Jose Manuel Lara gert slíkt hið sama.
McDowell var sex höggum undir pari áður en hann kom að tólfta teig en lauk að lokum leik í þriðja sæti á samtals ellefu höggum undir pari. McDowell fær einnig þrjá ókeypis gistinætur á Emitates Palace hótelinu í Abu Dhabi á hverju ári, það sem hann á eftir ævinnar. Nóttin á því hóteli kostar að lágmarki 120 þúsund krónur.
Ekki amalegt það hjá McDowell sem fékk einnig ótrúlegan fugl á 18. holunni þegar hann sló þriðja höggi sínu í áhorfendastúkuna og það skaust boltinn að holunni, í kjörið fuglafæri sem McDowell færði sér í nyt.

Graeme McDowell sýndi snilli sína í dag. Hann átti það skilið að hafa heppnina með sér eftir erfitt tímabil í fyrra.