Fréttir | sunnudagur 29. janúar 2012 | 16:02

Stefán Már í toppbaráttunni eftir fyrsta hring


Stefán Már Stefánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í góðri stöðu eftir fyrsta hring á Sueno Dunes Classic mótinu sem fram fer á þýsku EPD-mótaröðinni í Tyrklandi. Stefán lék á 68 höggum í dag eða einu höggi undir pari og er í 9. sæti.

Stefán lék mjög jafnt og gott golf í dag, fékk tvo fugla og einn skolla. Hann er aðeins tveimur höggum á eftir efstu mönnum en fjórir kylfingar eru jafnir í efsta sæti á þremur höggum undir pari.

Þórður Rafn Gissurarson úr GR er einnig með í mótinu og lék hann fyrsta hringinn á 71 höggi eða tveimur höggum yfir pari. Hann er í 29. sæti eftir fyrsta hring. Þórður fékk fjóra skolla og tvo fugla á hringnum í dag.

EPD-mótaröðin er í þriðja flokks styrkleika þegar litið er til atvinnumótaraða í Evrópu. Hún er góð byrjun fyrir kylfinga sem eru að taka sín fyrstu skref í atvinnugolfinu. Efstu kylfingarnir á stigalistanum í lok leiktíðar vinna sér inn keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Stefán Már og Þórður Rafn hafa leikið í tveimur mótum til þessa en fyrstu mót ársins fara fram í Tyrklandi og Marokkó.

Staðan í mótinu

Myndir: Stefán Már byrjar vel í Tyrklandi.