GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | sunnudagur 29. janúar 2012 | 12:07

Breytt fyrirkomulag á aðgengi á Setbergsvelli


Aðalfundur Golfklúbbsins Setbergs samþykkti tillögu stjórnar um breytt fyrirkomulag á aðgengi að vellinum. Ákveðið var að hækka fullt árgjald í kr. 54.000 og freista þess að fjölga félögum í 400 og takmarka sölu flatargjalda á ákveðnum tímum. Verða ekki seld flatargjöld eftir klukkan 15:00, frá mánudegi til fimmtudags, og fyrir klukkan 15:00, laugardag og sunnudag. Félögum verður þó heimilt á þessum tímum að taka með sér einn sem ekki er félagi í klúbbnum og skal viðkomandi greiða flatargjald.

Núna eru um 350 sem eru skráðir í klúbbinn eða hafa sótt um inngöngu. Það er því laust fyrir um 50 til viðbótar í klúbbinn að því gefnu að þeir sem fyrir eru í klúbbnum ætli að vera áfram. Þeim sem vilja sækja um inngöngu í klúbbinn er bent á að hafa samband við Þórarin Sófusson, thorarinns@gmail.com / 896 0085.

Ekki verður stuðst við rástímaskráningu á netinu heldur verða kylfingar að mæta á völlinn eins og áður hefur verið. Mótum þar sem völlurinn er lokaður verður haldið í algjöru lágmarki. Völlurinn verður einungis leigður út nokkra föstudaga í sumar og er stefnt að því að það liggi fyrir hvaða föstudagar það eru fyrir 1. maí n.k. Þá var samþykkt að hafa fleiri innanfélagsmót í miðri viku.