GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | laugardagur 28. janúar 2012 | 17:11

Gott rekstrarár hjá Setbergi - Mikil fjölgun félaga


Aðalfundur Golfklúbbsins Setbergs fór fram í vikunni. Rekstur klúbbsins gekk mjög vel á árinu 2011. Hagnaður af rekstri var 3.819.000 kr.- og hafa eignir klúbbsins aukist verulega. Klúbburinn er skuldlaus.

Setberg tók við rekstrinum á Setbergsvelli á síðasta ári og gerði tíu ára leigusamning á golfvellinum. Í byrjun rekstrarárs voru félagar aðeins um 100 talsins og var því auglýst eftir nýjum félögum. Það gekk heldur betur eftir og í lok rekstrarársins voru þeir 283 talsins.

Högni Friðþjófsson var endurkjörinn formaður GSE. Í stjórn klúbbsins voru kosnir: Högni Friðþjófsson formaður, Björn Eysteinsson, Pétur Einarsson, Óskar Sigurmundason, Karl Ísleifsson, Þórarinn Sófusson og Gunnlaugur Guðjónsson.

Í ársskýrslu formanns kemur fram að mikil áhersla hafi verið lögð á að bæta flatirnar á vellinum á síðasta starfsári. „Sérstaklega sjöttu og áttundu flöt en sjúkdómar hafa herjað á þær flatir s.l. ár. Samkvæmt ráðgjöf sérfræðinga voru þær flatir gataðar í tvígang, fengu sérstakan áburð ásamt því að úðað var lyfi yfir flatirnar. Áætlanir ganga út á að losa flatirnar við sjúkdómana á tveimur til þremur árum en til þess að það markmið náist er mikilvægt að fylgja því ferli sem nú er hafið,“ skrifa Högni í skýrslu formanns.

Klúbburinn hefur einnig í hyggju að opna nýja heimasíðu í ár. Drög hafa verið gerð að hinni nýju síðu sem verður líklega opnuð í vor.


Setbergsvöllur er skemmtilegur golfvöllur sem hefur fengið endurnýjun lífdaga eftir að Golfklúbbur Setbergs var settur á laggirnar á ný.