Fréttir | laugardagur 28. janúar 2012 | 12:53
Tiger tekur forystuna í Abu Dhabi
Tiger Woods er einn í forystu fyrir lokahringinn á Abu Dhabi Championship mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Woods lék frábært golf í dag, kom í hús á 66 höggum eða sex höggum undir pari og er samtals á ellefu höggum undir pari í mótinu.
Woods tapaði ekki höggi í dag og slátturinn hjá honum hefur sjaldan verið betri. Hann deilir forystunni í mótinu ásamt Englendingnum Robert Rock sem lék einnig á 66 höggum í dag. Rory McIlroy er í þriðja sæti á níu höggum undir pari en hann lék á 68 höggum í dag eða fjórum höggum undir pari.
Svíinn Peter Hanson er einnig á níu höggum undir pari eftir besta hring dagsins. Hann lék á 64 höggum eða átta höggum undir pari. Hann tapaði ekki höggi á hringnum.
Lokahringurinn á eftir að verða spennandi. Woods mun væntanlega leggja allt í sölurnar til að vinna en þá næði hann að fylgja eftir góðum sigri sínum á Chevron World Challenge mótinu í desember. Baráttan gæti orðið á milli Woods og McIlroy á morgun en margir hafa spáð því að þeir eigi eftir að há mikla baráttu á golfvellinum í ár. Lokahringurinn verður í beinni útsendingu á Skjár golf og hefst útsending kl. 09 í fyrramálið og þar til að móti lýkur.
Staðan í mótinu