Hleð inn spilara...


Fréttir | laugardagur 28. janúar 2012 | 08:59

Stanley enn efstur - Mickelson úr leik


Bandaríski kylfingurinn Kyle Stanley er efstur þegar Farmers Insurance Open mótið á PGA-mótaröðinni er hálfnað. Hann er samtals á 14 höggum undir pari og er einu höggi á undan Brandt Snedeker sem er annar.

Ég einbeiti mér að því að spila leiðinlegt golf - hitta brautir, hitta flatir og setja niður pútt,“ sagði Stanley eftir hringinn í gær en hann hefur leikið frábærlega í mótinu til þessa.
Sang-Moon Bae og Martin Flores eru í þriðja sæti á tólf höggum undir pari. Bill Haas og Hunter Mahan eru einnig í baráttunni en þeir eru á tíu höggum undir pari.

Phil Mickelson, sem er líklega þekktasti kylfingurinn í mótinu, er úr leik þrátt fyrir að hafa leikið annan hringinn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Fyrsti hringur hans í mótinu var hins vegar það slæmur að hann missti af niðurskurðinum með þremur höggum.

Staðan í mótinu