Fréttir | föstudagur 27. janúar 2012 | 12:27
Spennandi golfferð til Madeira hjá VITAgolf
VITAgolf býður upp á nýja og spennandi golfferð til portúgölsku eyjarinnar Madeira 10.-20. apríl í beinu leiguflugi með Icelandair. Gist verður á fimm stjörnu hóteli og einstaklega fallegur 18 holu golfvöllur, Palheiro völlurinn, er steinsnar frá hótelinu. Miðbærinn Funchal er svo aðeins í tíumínútna akstursleið frá hótelinu.
Um Palheiro:
Hin portúgalska eldfjallaeyja, Madeira liggur vestur af ströndum Afríku og er heimur út af fyrir sig. Hitabeltisloftslag, friðsæld, náttúrufegurð, veðursæld og fjölbreytt mannlífið er heillandi. Frá flugvellinum í Madeira er aðeins 15 mínútna akstur að Palheiro 5* lúxushótelinu sem okkar gestir gista á í þessari ferð. Sjá kort
Hotel Casa Velha do Palheiro er 5* lúxushótel í ekta portúgölskum/enskum byggingastíl. Á hótelinu er rólegt og yfirvegað andrúmsloft um leið og lúxus og þægindi blandast saman. Veitingastaður hótelsins er þekktur fyrir einstaklega góðan mat. Þrátt fyrir góðan mat á hótelinu er ekki hægt að sleppa ferð í miðbæ Funchal, aðeins 10 mínútur frá hótelinu (ókeypis skutlbíll), til að upplifa bæjarstemmninguna og veitingahús þau þrjú kvöld sem matur er ekki innifalinn.
Við hótelið er einstakur blóma- grasagarður með blóm og jurtir allstaðar að úr heiminum. 45 þúsund gestir heimsækja garðinn á hverju ári.
Palheiro 18 holu golfvöllurinn er fallegur, vel hirtur með einstöku útsýni yfir bæinn Funchal og hafið. Völlurinn er hæðóttur og við mælum eindregið með að pantaður sé golfbíll þegar ferðin er bókuð. Golfbíll kostar 135 evrur (ca. 22.000 kr. á mann) m.v. tvo í bíl ótakmarkað í 10 daga. Klúbbhúsið og fyrsti teigur er u.þ.b. 3ja mínútna akstur frá í skutlbíl sem gengur frá hótelinu.
Hér má finna nánari upplýsingar um golfferðina til Madeira.


