GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | föstudagur 27. janúar 2012 | 11:04

Ný heimasíða hjá GA - Niðurstöður úr þjónustukönnun


Golfklúbbur Akureyrar hefur opnað nýja heimasíðu sem þykir öllu glæsilegri en sú gamla. Síðan hefur verið bætt til nokkurra muna, bæði útlitslega og upplýsingalega sem ætti að falla vel í kramið á kylfingum norðan heiða.

Fyrir nokkru sendi stjórn GA út þjónustukönnun á alla félaga í golfklúbbnum. Þátttaka var mjög góð, en um 250 félagar svöruðu könnunni. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:

Í könnuninni kemur fram að félagar eru almennt ánægðir með þjónustu golfklúbbsins, þær framkvæmdir sem þegar eru um garð gegnar og aðstöðuna í Golfhöllinni svo eitthvað sé nefnt. Það sem félagar nefna helst að bæta megi eru ákveðnir hlutar vallarins, s.s. teigar og glompur, auk þess sem félögum finnst mörgum að betur megi gera í almennri umhirðu vallarins. Æfingaaðstaða þykir ekki nógu góð, þ.m.t. mottur, boltar, aðgengi að æfingasvæðinu og umgengni um það.

Helstu niðurstöður má lesa um hér.