Hleð inn spilara...


Fréttir | fimmtudagur 26. janúar 2012 | 14:25

GolfTV: Garcia fór holu í höggi í morgun


Spánverjinn Sergio Garcia fagnaði vel og innilega þegar hann fór holu í höggi á fyrsta hringnum á Abu Dhabi Championship mótinu á Evrópumótaröðinni sem hófst í morgun. Hann fór holu í höggi á 12. holu sem er um 160 metra löng. Boltinn skoppaði tvisvar á flötinni áður en hann rann mjúklega í holuna.

Hinn 32 ára Garcia lék á 70 höggum í dag og er þremur höggum á eftir þeim Rory McIlroy og Robert Karlsson. Hann kastaði hnefanum hraustlega í loftið þegar boltinn fór niður fyrir ási.

Í lok síðasta tímabils var Garcia í öðrum ham en þá kastaði hann golfkylfu í vatn eftir slæmt högg. Öllu skemmtilegri bragur var á honum í dag. Landi Garcia, Spánverjinn Jose Manuel Lara fór einnig holu í höggi á 12. holu í morgun. Hér að ofan má sjá ásinn hjá Garcia.