Fréttir | miðvikudagur 25. janúar 2012 | 14:46
Skiptar skoðanir um nafnlaust spjall
Eins og flestir lesendur okkar ættu að vita þá ákvað ritstjórn Kylfings.is að taka hið vinsæla spjallkerfi út í óákveðin tíma. Ákveðið hefur verið að nafnlaust spjall verði ekki áfram á síðunni. Í spurningu vikunnar þá spurðum við lesendur okkar hvort þeir væri með eða á móti þeirri ákvörðun að loka spjallinu tímabundið?
Afar góð þátttaka var í könnunni en um 500 atkvæði voru greidd. Tæplega helmingur greiddra atkvæða, 49,6%, eru hlynntir þessari ákvörðun gegn 41,7% þeirra sem voru henni mótfallnir. 8,7% hafa ekki skoðun á málinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framtíð spjallsins á Kylfingi.is.
Nú hefur ný spurning vikunnar litið dagsins ljós á Kylfingi.is en að þessu sinni spyrjum við: Ferð þú til golfkennara yfir vetratímann? Spurningu vikunnar má finna neðarlega á forsíðu síðunnar.