GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | miðvikudagur 25. janúar 2012 | 11:54

Óheppnin eltir Levet - Rann og braut rifbein


Frakkinn Thomas Levet hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann vann Opna franska mótið í sumar. Eins og frægt er þá ákvað hann að stökkva út í tjörnina við 18. flötina á Le Golf National golfvellinum í París eftir sigur sinn í Opna franska mótinu. Hann braut bein í fæti sínum þegar hann lenti og botni tjarnarinnar og missti af Opna breska meistaramótinu í kjölfarið.

Hann hefur nú dregið sig úr keppni á Evrópumótaröðinni næstu vikurnar eftir að hafa brotið rifbein í Volvo Golf Championship mótinu. Hann rann til í tröppum með þeim afleiðingum að hann að hann féll á kviðinn og braut rifbein.

Á Twitter síðu sinni segist Levet verða frá keppni í þrjár til sex vikur. Þessi 43 ára kylfingur á að baki sex sigra á Evrópumótaröðinni og komst í umspil um sigurinn á Opna breska meistaramótinu árið 2002 þegar Ernie Els fór með sigur af hólmi.