GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | mánudagur 23. janúar 2012 | 11:47

Grace lyfti sér upp í topp-100 á heimslistanum


Branden Grace frá Suður-Afríku hefur átt sannkallaða draumabyrjun á leiktíðinni og unnið bæði Joburg Open og Volvo Golf Championship mótin á Evrópumótaröðinni. Hann hóf árið í 271. sæti á heimslistanum en er nú kominn upp í 92. sæti heimslistans. Frábær árangur hjá þessum 23 ára gamla kylfingi sem er nú með öruggan keppnisrétt á mótaröðinni næstu árin eftir sigranna tvo.

Mark Wilson er einnig á uppleið eftir sigur sinn á Sony Open mótinu í gær. Hann fer upp um 17 sæti á milli vikna og er nú í 40. sæti. Hann er á góðri leið með að tryggja sér keppnisrétt á Masters mótinu en 50 efstu kylfingarnir í lok mars fá keppnisrétt í mótinu.

Litlar sem engar breytingar verða á meðal efstu kylfinga á listanum nema að Charl Schartzel og Dustin Johnson hafa sætaskipti. Schwartzel tekur sæti Johnson og er nú í 8. sæti listans. Engar aðrar breytingar verða á topp-20.

Staðan á heimslistanum