Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 22. janúar 2012 | 02:18

Wilson með þriggja högga forystu í Kaliforníu


Bandaríski kylfingurinn Mark Wilson er efstur á Humana Challenge mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni en hann er alls 21 höggi undir pari eftir þrjá keppnisdaga. Fresta þurfti leik í gær vegna mikils vinds sem meðal annars olli skemmdum á golfsvæðinu þar sem mótið fer fram í Kaliforníu.

Wilson er þremur höggum á undan Ben Crane sem lék aðeins tólf holur í gær á meðan Wilson kláraði 15 holur. Zach Johnson er einnig í baráttunni en hann er einn í þriðja sæti á 18 höggum undir pari.

Í mótinu leika atvinnumenn með áhugamönnum og er leikið á þremur völlum. Gerður verður niðurskurður eftir þriðja hring og leika þá allir kylfingar á sama vellinum á lokahringnum. Phil Mickelson er einn þeirra sem er í hættu á að komast ekki í gegnum niðurskurðinn í mótinu.

Staðan í mótinu


Mark Wilson er efstur í mótinu.