GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


Fréttir | laugardagur 21. janúar 2012 | 12:58

Skor frábær á Humana Challenge - Þrír efstir


Þeir Mark Wilson, Ben Brane og David Toms eru efstir í Himana Challegna mótinu á samtals 16 höggum undir frábæra fyrstu tvo hringi. Skor í mótinu er frábært og eru margir kylfingar að leika vel.

Enginn lék þó eins vel og Mark Wilson í gær sem kom í hús á 62 höggum eða tíu höggum undir pari og náði fyrir vikið að lyfta sér upp í efsta sætið. Ben Crane átti einnig góðan hring í gær en hann lék á níu höggum undir pari.

Camilo Villegas er í fjórða sæti á samtals 13 höggum undir pari og er ennþá í miðri baráttunni um sigurinn. Hann deilir fjórða sætinu með Harris English frá Bandaríkjunum sem er nýliði á mótaröðinni.

Staðan í mótinu