Fréttir | föstudagur 20. janúar 2012 | 11:40

Ewart vann úrtökumótið fyrir Evrópumótaröð kvenna


Jodi Ewart frá Englandi bar sigur úr býtum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna sem lauk í gær á Spáni. Hún lék samtals á 11 höggum undir pari og varð tveimur höggum á undan Anais Maggetti frá Sviss sem varð önnur.

Alls voru 30 kylfingar sem tryggðu sér fullan keppnisrétt á mótaröðina á næstu leiktíð en fara þurfti í bráðbana um tvo síðustu sætin þar sem sex kylfingar voru jafnir í 29. sæti. Laura Cabanillas frá Spáni og Sharmila Nicollet frá Indlandi náðu tveimur síðustu sætunum inn á mótaröðina.

Tinna Jóhannsdóttir úr Keilir tók þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem Tinna reynir fyrir sér í úrtökumótinu og fær vafalaust mikla reynslu af þátttökunni. Hún stefnir á keppni í minni mótaröðum í kjölfarið en ólíklegt þykir að hún fái að leika á Evrópumótaröðinni í ár.

Lokastaðan í mótinu