GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


Fréttir | föstudagur 20. janúar 2012 | 08:32

Villegas og Toms efstir á Humana Challenge


Camilo Villegas og David Toms eru efstir eftir fyrsta hring á Humana Challenge mótinu sem hófst í gær á PGA-mótaröðinni. Þeir léku báðir fyrsta hringinn á níu höggum undir pari en leikið er á þremur völlum í mótinu.

Villegas lék á Nicklaus vellinum í gær og var í stuði á flötunum. Hann skipti nýverið yfir í magapútter sem er heldur betur að skila sér því hann þurfti aðeins 24 pútt á hringnum í gær. Hann átti slæmt tímabil á síðasta ári og kemur vel undirbúinn til leiks í ár.

Ég skemmti mér á hringnum, spjallaði við áhugamennina og reyndi að slá á rétta staði. Hvernig stóð ég mig?“ grínaðist Villegas í blaðamönnum eftir hringinn.

Margir kylfingar voru að leika vel á fyrsta hring. John Rollins gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 7. holu Nicklaus vallarins. Hann lék fyrsta hringinn á 68 höggum. Phil Mickelson var ekki í stuði á fyrsta hring því hann kom í hús á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari og er á meðal neðstu manna.

Staðan í mótinu


Camilo Villegas var heitur á fyrsta hring.