Hleð inn spilara...
Fréttir | föstudagur 20. janúar 2012 | 07:03
GolfTV: McIlroy á besta högg ársins á Evrópumótaröðinni
Evrópumótaröðin tilkynnti í gær hvaða þrjú högg hefðu orðið í efstu sætunum í kosningum um besta högg ársins fyrir árið 2011. Fjölmörg glæsileg tilþrif litu dagsins ljós á árinu sem leið en það getur aðeins eitt högg verið í efsta sæti.
Í þriðja sæti varð högg úr glompu hjá Rory McIlroy sem tryggði honum sigurinn í UBS Hong Kong Open mótinu. Hann sló niður högginu úr glompunni á 18. holunni á lokahringnum og tryggði sér flottan sigur.
Í öðru sæti var glæsihögg frá Spánverjanum Miguel Angel Jimenez á lokahringnum í Andalucia Masters mótinu á Valderama vellinum á Spáni. Hann sló í tveimur höggum inn á flöt á hinni frægu 17. braut og tók gríðarlega áhættu. Glæsilegt högg sem aðeins þeir geta framkallað þegar þeir eru í baráttunni um sigurinn.
Besta högg ársins á Evrópumótaröðinni á hins vegar N-Írinn Rory McIlroy fyrir magnað högg í Opna bandaríska meistaramótinu á Congressional vellinum síðastaliðið sumar. McIlroy vann frábæran sigur í mótinu og var ekki langt frá því að fara holu í höggi. Boltinn hans stöðvaðist nokkrum sentímetrum frá holunni og átti McIlroy ekki í vandræðum með að setja niður púttið fyrir fugli. Hann vann svo mótið með átta högga mun og setti mótsmet þegar hann lék samtals á 16 höggum undir pari.
