GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | fimmtudagur 19. janúar 2012 | 07:56

Clarke leggur Guinness krúsinni - Farinn í ræktina


Norður-Írinn Darren Clarke náði að uppfylla drauma sína í golfinu þegar hann sigraði á Opna breska meistaramótinu á síðasta ári. Hann fagnaði þeim sigri hraustlega eins og við er að búast af Norður-Íra. Hann hefur nú ráðið sér einkaþjálfara til að vera í betra líkamlegu formi enda lokaárin á meðal þeirra bestu framundan.

Ferilinn lengdist í kjölfar sigursins á Opna breska. Ég hugsaði með sjálfum mér fyrir skömmu að nú væri þetta orðið gott og að ég yrði að koma mér í form,“ skrifaði Clarke á heimasíðu síns.

Clarke hefur ráðið Jonny Bloomfield til að koma sér í betra form. Hann hefur keppnistímabilið í dag á Volvo Golf Champions mótinu sem fram fer í Suður-Afríku. Clarke viðurkennir að áfengisneysla hans hafi hrapað að undanförnu.

Áfengisneyslan er engin sem stendur. Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun og er spenntur. Það er löng leið framundan en þetta mun hjálpa mér,“ sagði Clarke ennfremur.