GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | miðvikudagur 18. janúar 2012 | 16:18

Garcia flinkur í póker - Græddi þrjár milljónir króna


Spænski kylfingurinn Sergio Garcia er einn af bestu kylfingum heims en hann er einnig fær í mörgu öðru. Garica er áhugamaður um póker og tók þátt í stóru pókermóti á Bahamas fyrir skömmu þar sem yfir þúsund manns tóku þátt. Greiða þurfti 1,2 milljón króna í þátttökugjald.

Mótið er langt og strangt. Garcia var sleginn út á fjórða degi og varð í 51. sæti sem verður að teljast nokkuð góður árangur. Garcia mun vera nokkuð fær í póker og hefur gaman af því að leika í frístundum með vinum. Fyrir árangurinn fékk Garcia 4,2 milljónir króna í verðlaunafé og því græddi hann um þrjá milljónir króna á þátttöku sinni.

Póker og golf er ekki eina áhugamál Garcia því hann spilar einnig fótbolta með liði í heimabæ sínum á Spáni. Hann er einnig forseti félagsins. Hann vann tvö mót í röð á Evrópumótaröðinni á síðustu leiktíð og ætlar sér stóra hluti á árinu 2012.

Þegar ég er ánægður utan vallar, þá er ég glaðari innan vallar. Ég hef alltaf reynt að hafa stöðugleika milli einkalífs míns og golfsins. Ég hef lagt meiri áherslu á það að undanförnu,“ sagði Garcia.