GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | miðvikudagur 18. janúar 2012 | 11:06

Wilson semur við kynþokkafyllsta kvenkylfing heims


Wilson Staff hefur samið við kynþokkafyllsta kvenkylfing heims, ensku fyrirsætuna Sophie Horn. Hún var nýlega valin sú kynþokkafyllsta á golfvellinum af bandarísku vefsíðunni Bleacher. Þessi 25 ára fyrirsæta og módel hefur einnig starfað sem sjónvarpskona í Golfing World sjónvarpsþættinum.

Það var ekkert annað sem kom til greina en Wilson því ég elska þessar vörur svo mikið,“ sagði Horn en nokkur önnur golfvörufyrirtæki sýndu því áhuga að semja við Horn.

Það verður seint sagt að Horn sé besti kvenkylfingur heims en hún er með fjóra í forgjöf og er minna þekkt fyrir hæfileika sína á golfvellinum. Hún er hins vegar talsvert þekkt í golfheiminum, þá aðallega vegna fegurð sinnar.

Englendingurinn Steve Webster samdi einnig við Wilson á dögunum en hann hefur tvisvar staðið uppi sem sigurvegari á Evrópumótaröðinni. Hann mun nota járn frá Wilson og poka. „Lengdarstjórnunin með járnunum er ótrúlega stöðug og fæ mikla tilfinningu fyrir því hvernig ég vil móta golfhöggið,“ sagði Webster.