GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | þriðjudagur 17. janúar 2012 | 10:41

Wagner og Grace fljúga upp heimslistann


Bandaríski kylfingurinn Johnson Wagner flýgur upp heimslistann í golfi eftir sigur sinn á Sony Open mótinu á PGA-mótaröðinni um síðustu helgi. Wagner fer upp um 106 sæti á milli helga og er nú í 92. sæti á heimslistanum.

Branden Grace frá Suður-Afríku tekur einnig vænt skökk upp heimslistann eftir góðan sigur á Joburg Open mótinu um helgina og er nú kominn í 164. sæti listans. Hann fer upp um 107 sæti á milli vikna en með sigrinum tryggði hann sér jafnframt keppnisrétt til næstu tveggja ára á Evrópumótaröðinni.

Ein breyting verður á topp-10 á heimslistanum en Webb Simpson tók sæti Adam Scott í 6. sæti listans. Luke Donald er sem fyrr efstur í efsta sæti en hann mun ekki leika í móti fyrr en í byrjun febrúar.

Staðan á heimslistanum

Mynd/Kylfingur.is: Johnson Wagner var kátur eftir sigur sinn á Hawaii um helgina.