GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


Fréttir | mánudagur 16. janúar 2012 | 13:35

GolfTV: Casey kastar boltanum inn á flöt


Við greindum frá því fyrir skömmu að Englendingurinn Paul Casey yrði frá næstu vikurnar eftir að hafa farið úr axlalið eftir að hann féll við á snjóbretti. Í sumar var Casey við keppni á Skins móti í Kanada og lék meðal annars með þeim Lucas Glover og Jhonattan Vegas.

Casey er kappsmikill og tók veðmáli frá Glover um að kasta boltanum inn á flöt á 120 metra langri par-3 braut. Afraksturinn var einkar góður hjá Casey sem hefði vart getað gert betur hefði hann slegið boltanum.


Lucas Glover og Paul Casey fara yfir málin áður en Casey kastar boltanum inn á flöt.