Fréttir | fimmtudagur 12. janúar 2012 | 12:22

Nafnlaust spjall er liðin tíð á Kylfingi.is


Margir lesendur okkar hér á Kylfingi.is hafa vafalaust tekið eftir því að spjallkerfið, sem notið hefur mikilla vinsælda á undanförnum árum, hefur ekki verið uppi í vikunni. Ritstjórn Kylfings.is ákvað sl. mánudag að taka tímabundið úr notkun núverandi spjallkerfi þar sem lesendur gátu rætt málin sín á milli án þess að koma undir nafni.

Þrátt fyrir ótvírætt ágæti spjallsins á Kylfingi.is þá hefur oftar en ekki komið fyrir að kylfingar hafa nýtt sér nafnleynd til óvægins málflutningar og oft á tíðum varpað fram ókurteisum staðhæfingum sem engum var sómi af.

Það dylst engum að spjallið hefur verið vettvangur þar sem kylfingar landsins hafa geta skipst á skoðunum um málefni líðandi stundar í golfheiminum. Það er hins vegar mat ritstjórnar að nú sé tími nafnlaus spjalls á vefnum liðin tíð. Spjallið fer því í tímabundið frí á meðan aðrir möguleikar verða skoðaðir. Við vonum að lesendur síðunnar sýni þessu skilning og vonandi getum við boðið upp á nýtt og betra kerfi innan skamms. Kylfingur.is mun áfram vera í fararbroddi við að flytja fréttir af öllu því helsta sem er í gangi í golfinu bæði hér heima og erlendis.

Við bendum á netfangið okkar, kylfingur@kylfingur.is, vilji lesendur koma fram ábendingum.

Gleðilegt nýtt ár,
Ritstjórn Kylfings.is