Fréttir | þriðjudagur 10. janúar 2012 | 12:53
Stricker í fimmta sæti heimslistans
Steve Stricker er kominn upp í 5. sæti heimslistans eftir sigur sinn á Hyundai Tournament of Champions sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Þessi 44 ára kylfingur hefur sætaskipti við Adam Scott á heimslistanum. Þetta er fullkomin byrjun á árinu fyrir Stricker sem hefur best komist upp í þriðja sæti heimslistans.
Louis Oosthuizen hefur einnig lyft sér upp heimslistann eftir góðan sigur í Africa Open mótinu á Evrópumótaröðinni. Hann er nú í 26. sæti listans og fer upp um 14 sæti á frá síðasta lista.
Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti listans og hefur góða forystu á Lee Westwood frá Englandi sem er annar. Rory McIlroy kemur skammt á eftir Westwood en þeir hafa skipst á öðru sætinu á undanförnum mánuðum.
Staðan á heimslistanum
