Fréttir | fimmtudagur 5. janúar 2012 | 15:56
Aiken byrjar nýja árið með látum - Leiðir með einu í Suður-Afríku
Thomas Aiken er efstur eftir fyrsta keppnisdag í Africa Open mótinu sem fram fer á East London golfsvæðinu í Suður-Afríku. Aiken lék á 64 höggum í dag eða níu höggum undir pari og er einu höggi á undan þeim Jaco Ahlers og Retief Goosen, einnig frá Suður-Afríku.
Aiken lék mjög vel í dag og fékk meðal annars tvo erni á hringnum í dag. Hann bætti við fimm fuglum og kom því í hús á 64 höggum. Margir heimamenn eru ofarlega á töflunni en leiktíðin hefst árlega í Suður-Afríku með þremur mótum. Stórstjörnur Evrópugolfsins hefja flestar ekki leik fyrr en leikið er í Abu Dhabi síðar í mánuðinum.
„Ég átti ekki von á svona góðum hring eftir að hafa tekið mér tveggja vikna frí án þess að snerta kylfu. Þetta var frábær morgun en aðstæður voru frábærar. Ég sló nokkur frábær högg og setti niður góð pútt,“ sagði Aiken eftir hringinn í dag.
Staðan í mótinu