Hleð inn spilara...
Fréttir | miðvikudagur 4. janúar 2012 | 09:18
Golfkennsla með Donald - Æfðu óþægilegu fjarlægðirnar
Englendingurinn Luke Donald er besti kylfingur heims um þessar mundir og hefur sett saman nokkur golfkennslumyndbönd ásamt Mizuno golfvöruframleiðandanum. Í myndbandinu hér að ofan fer Donald yfir það hvernig á að slá þau högg sem eru úr óþægilegri fjarlægð.
Donald slær á eftir um 100 metra högg og ætlar hann að slá með PW kylfu sem hann slær jafnan 112-115 metra með í fullri sveiflu. Donald ætlar því að sýna hvernig á að slá ¾ sveiflu og þannig að kenna þér hvernig á að nálgast þessar fjarlægðir sem eru á milli kylfa.
