Fréttir | miðvikudagur 28. desember 2011 | 12:04
Rooney farinn að kenna syni sínum golf
Enski knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney er farinn að kenna tveggja ára syni sínum golf og vonast til að gera son sinn, Kai, að mjög færum kylfingi. Rooney er sjálfur fínn kylfingur og leikur í frítíma sínum þegar hann er ekki á fullri ferð með Englandsmeisturum Manchester United eða enska landsliðinu.
Rooney keypti nýlega golfsett frá Nike handa syni sínum og hefur ráðið þjálfara fyrir sig og son sinn að sögn heimildarmanns Daily Star. Hver veit nema að Kai Rooney eigi eftir að verða þekkt nafn í golfheiminum eftir tvo áratugi.
„Tiger Woods byrjaði þegar hann var tveggja ára og Wayne vill að Kai fái reglulega kennslu frá unga aldri líkt og Tiger. Ef hann byrjar áður en hann byrjar í skóla þá ætti hann að verða betri en pabbi sinn þegar hann verður komin á táningsaldur.“
Rooney-fjölskyldan á heima í úthverfi Manchester nærri Prestbury vellinum. Þau eiga einnig heimili í Barbados nærri Royal Westmoreland vellinum. Freddy Shepard, fyrrum stjórnarformaður Newcastle United og nágranni Rooney á Barbados, sagði eitt sinn um Rooney: „Það eru ekki margir sem vita það en Rooney hefur líklega jafnmikla hæfileika á golfvellinum og í fótboltanum.“