Hleð inn spilara...


Fréttir | sunnudagur 25. desember 2011 | 16:06

GolfTV: Dagurinn sem Calcavecchia vill gleyma


Í nýjasta hefti Golf á Ísland er skemmtileg grein þar sem fjallað er um þá tilhneigingu kylfinga til að brotna (e. choke) undir pressu. Rifjuð eru upp fimm eftirminnileg atvik sem skipa ríkan sess í golfsögunni.

Eitt þessara atvika er viðureign Skotans Colin Montgomerie gegn Bandaríkjamanninum Mark Calcavecchia í Ryder-bikarnum á Kiwi-eyjum í Suður-Karólínu í Ryder-bikarnum árið 1991. Calcavecchia átti fjórar holur þegar fjórar holur voru eftir og það virtist vera formsatriði fyrir Bandaríkjamanninn að knýja fram sigur.

Calcavecchia lék síðustu fjórar holurnar skelfilega og missti meðal annars meters pútt á 17. holunni til að tryggja sér sigur. Þess í stað tapaði hann fjórum síðustu holunum og þeir skiptu með sér stiginu. Montgomerie fagnaði sigri hrósandi en Calcavecchia tók þessu afar nærri sér, gekk einn út á strönd og grét.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá lokaholurnar í einvígi þessara kappa.