Fréttir | þriðjudagur 20. desember 2011 | 07:21
Var Kim Jong-Il besti kylfingur allra tíma?
Einræðisherra Norður-Kóreu, Kim Jong-Il, lést um helgina úr hjartaslagi 69 ára að aldri. Hæfileikar hans á golfvellinum þekkja þó færri og líklega var þarna á ferðinni besti kylfingur allra tíma ef marka má heimildir um afrek hans á golfvellinum.
Árið 1994 lék Kim fyrsta golfhring á ferilsins á Pyongyang vellinum en það er einmitt eini golfvöllurinn í Norður-Kóreu. Völlurinn er um 6900 metra langur en Kim átti ekki í miklum vandræðum, lék á 34 höggum eða 38 höggum undir pari vallarins!
Kim, sem þá var 52 ára gamall, fór fimm sinnum holu í höggi á hringnum og lék enga holu verr en á fugli. 17 lífverðir Kim urðu vitni af þessum ótrúlega hring en besta skor sem vitað er til að kylfingur hafi leikið á í opinberu móti er 58 högg.
„Hann er ótrúlegur kylfingur,“ sagði Park Young Man, atvinnukylfingur í Pyongyang golfklúbbnum nokkrum mánuðum eftir hringinn en afrek Kim spurðist út í Norður-Kóreu og var mikill fjölmiðlamatur. Það er synd að golfáhugamenn vítt og breytt um heiminn fengu aldrei að njóta ótrúlegra hæfileika Kim á golfvellinum.
Fjölmiðlar hafa fjallað mikið um Kim eftir að fréttir af dauða hans voru staðfestar af N-kóreska ríkissjónvarpinu og gerir thestar.com golfhæfileika Kim að umtalsefni sínu á heimasíðu sinni í gær. Sjá má frétt thestar.com með að smella hér.