Fréttir | sunnudagur 27. nóvember 2011 | 22:42

Day vill fá að dreifa ösku föður síns á Augusta


Ástralski kylfingurinn Jason Day vill fá að dreifa ösku látins föður síns á Augusta National vellinum í Bandaríkjunum þar sem Masters risamótið fer fram árlega. Day, sem er einn besti kylfingur Ástralíu og varð í öðru sæti í Masters mótinu á síðasta ári, ætlar að reyna að uppfylla eina af óskum föður síns sem lést úr krabbameini þegar Day var tólf ára gamall.

Ég vona að þetta gangi eftir en ef mér verður hafnað þá skil ég það. Þetta var eina af síðustu óskum föður míns og það væri frábært ef mér tækist að uppfylla hana. Ég geri mér grein fyrir hvernig reglurnar eru á Augusta, það er mjög ólíklegt að mér verði leyft að gera þetta en við sjáum til,“ sagði Day.

Alvyn Day hét faðir Jason sem kenndi honum grunnatriðin í golfíþróttinni. Jason er nú 24 ára og þykir einn efnilegasti kylfingur heims um þessar mundir. Hann lék á Masters mótinu í fyrsta sinn í ár og er í 8. sæti heimslistans.