Forsíða | mánudagur 14. nóvember 2011 | 14:50
Mickelson í frægðarhöllina
Hin litríki Bandaríkjamaður, Phil Mickelson verður tekinn inn í frægðarhöll golfsins á næsta ári. Þetta var tilkynnt í síðustu viku og Lefty var auðvitað í skýjunum með þá útnefningu. Í kosningu um málið hlaut hann 80% atkvæða sem er eitt það mesta sem nokkur hefur fengið í útnefningu fyrir frægðarhöllina. Hér heyrum við í Phil á blaðamannafundi PGA út af málinu.
