Fréttir | mánudagur 7. nóvember 2011 | 15:02
Ueda hafði betur í bráðabana á Mizuno Classic
Momoko Ueda frá Japan fór með sigur af hólmi á Mizuno Classic mótinu sem fram fór um helgina á LPGA-mótaröðinni. Ueda hafði betur í bráðabana gegn Shanshan Feng en báðar léku þær á 16 höggum undir pari í mótinu.
Þetta er annar sigur Ueda á LPGA-mótaröðinni en hún hefur unnið níu mót á japönsku mótaröðinni. Hún fékk um 20 milljónir króna í verðlaunafé fyrir sigurinn en þetta er hennar fyrsti sigur síðan 2009.
„Ég var farin að halda að ég myndi aldrei vinna aftur,“ sagði hin 25 ára Ueda sem setti niður gott pútt á þriðju holu bráðabanans fyrir sigri.
Lokastaðan í mótinu