GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | fimmtudagur 3. nóvember 2011 | 16:52

Tseng boðið sæti í PGA-móti í Puerto Rico


Besta golfkona heims, Yani Tseng frá Tavían, hefur verið boðið að leika í Puerto Rico Open mótinu sem fram fer á PGA-mótaröðinni í mars á næsta ári. Í mótinu leika fá stór nöfn þar sem WGC Cadillac Championship mótið á Heimsmótaröðinni fer fram á sama tíma. Mótsstjórinn, Sidney Wolf, sér gott tækifæri í því að bjóða Tseng keppnisrétt í mótinu.

Að hafa besta kvenkylfing heims með í mótinu gæti aukið athyglina á mótinu. Það gæti opnað möguleika á móti á LPGA-mótaröðinni í framtíðinni og eyjunni Puerto Rico,“ sagði Wolf í samtali við Golfweek.

Ráðgjafi Tseng, Ernie Huang, talar hins vegar niður þann möguleika á að Tseng verði með í mótinu. Hún hefur unnið ellefu mót í ár á heimsvísu og alls 30 mót á ferlinum þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul.

Við erum þakklát fyrir boðið en það eru fleiri markmið sem hún vill ná. Hún á enn eftir að vinna öll risamótin og komast í frægðarhöllina. Að leika á móti á PGA-mótaröðinni gæti truflað hana.“