Fréttir | þriðjudagur 1. nóvember 2011 | 17:24

Tseng væri til í að spreyta sig á PGA


Besti kvenkylfingur heims, Yani Tseng frá Taívan, væri meira en til í það að leika á bestu atvinnumótaröð karla, PGA-mótaröðinni, ef hún fengi tækifærið. Tseng er án nokkurs vafa besti kylfingurinn hjá konunum um þessar mundir en hún hefur unnið ellefu mót í ár og alls 30 atvinnumót á ferlinum þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gömul.

Ef að ég fengi tækifærið þá myndir ég grípa það og reyna að læra meira af körlunum,“ sagði Tseng í viðtali meðan hún var við keppni í Suzhou Taihu Ladies Open mótinu í Kína. Þrátt fyrir að vera sú langbesta í heiminum um þessar mundir þá fær Tseng ekkert sérstaklega mikla athygli. Ástæðan er líklega sú að hún er ekki frá Bandaríkjunum né Evrópu.

Pistlahöfundurinn Shane Bacon hjá Yahoo Sports segir að Tseng ætti góða möguleika á að standa sig vel í karlamótum þar sem vellirnir eru lengri. „Hún er slær langt, setur niður mörg pútt og virðist í sérflokki hjá konunum. Að spila á PGA-mótaröðinni gæti verið það sem hún þarf á að halda til að fá athyglina sem hún á skilið.“

Áður hafa konur leikið á PGA-mótaröðinni. Bæði Annika Sörenstam og Michelle Wie reyndu fyrir sér en komust hvorugar í gegnum niðurskurðinn. Fróðlegt væri hins vegar að sjá Tseng reyna fyrir sér enda hefur hún leikið magnað golf í ár.