Fréttir | þriðjudagur 1. nóvember 2011 | 08:39
Tseng óstöðvandi - Ellefti sigur ársins
Það fer að verða vikulegur liður hér á Kylfingi.is að skrifa fréttir um sigra Yani Yseng frá Taívan. Um helgina vann hún sitt ellefta mót á árinu þegar hún bar sigur úr býtum í Suzhou Taihu Ladies Open mótinu sem lauk á sunnudag.
Tseng er 22ja ára gömul og varð sjö höggum á undan hinni sænsku Pernilla Lindberg en Tsegn lék alls á 16 höggum undir pari. Hún hefur nú unnið 30 atvinnumót á ferlinum þrátt fyrir ungan aldur og hefur komið sér vel fyrir í efsta sæti heimslista kvenna.
„Þetta er spennandi. Ég er að leika mjög stöðugt golf og er þolinmóð. Ég tek eitt högg í einu og reyni að læra af mistökunum sem ég geri,“ sagði Tseng sem er farin að skipa sér í sess á meðal bestu kvenkylfinga sögunnar.