GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | mánudagur 31. október 2011 | 14:06

Garcia upp í 18. sæti heimslistans


Spánverjinn Sergio Garcia hefur þotið upp heimslistann í golfi eftir tvo sigra í röð á Evrópumótaröðinni. Hann var í 78. sæti á listanum í upphafi árs en er nú kominn upp í 18. sæti eftir frábæra frammistöðu undanfarnar tvær vikur.

Garcia á þó enn nokkuð í land með að ná fyrri stöðu á heimslistanum en hann var best í 2. sæti heimslistans árið 2008. Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti listans, Lee Westwood annar og Rory McIlroy situr í þriðja sæti.

McIlroy á möguleika á að ná öðru sætinu af Westwood um næstu helgi þegar HSBC Champions mótið fer fram í Kína. McIlroy hefur gefið það út að hann vilji nálgast Donald í efsta sæti heimslistans áður en árið er úti og á góðan möguleika um helgina þar sem Donald verður ekki með.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1 Luke Donald 10.62 stig
2 Lee Westwood 7.50
3 Rory McIlroy 7.33
4 Dustin Johnson 6.15
5 Steve Stricker 6.13
6 Martin Kaymer 6.01
7 Jason Day 5.65
8 Adam Scott 5.52
9 Webb Simpson 5.32
10 Matt Kuchar 5.32
11 Phil Mickelson 5.26
12 Nick Watney 5.16
13 KJ Choi 4.77
14 Charl Schwartzel 4.59
15 Graeme McDowell 4.36
16 Bubba Watson 4.18
17 Justin Rose 4.10
18 Sergio Garcia 4.04
19 David Toms 3.98
20 Hunter Mahan 3.96

Heimslistinn í heild sinni