Fréttir | mánudagur 24. október 2011 | 15:26
Mickelson út af topp-10 - Garcia á uppleið
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson er dottinn út af topp-10 á heimslistanum í fyrsta sinn síðan í febrúar árið 2004. Hann hefur aldrei náð efsta sætinu á heimslistanum og fékk fjölda tækifæra á síðasta ári til að ná efsta sætinu þegar Tiger Woods var í efsta sætinu. Nú lítur út fyrir að Mickelson nái ekki efsta sætinu í bráð.
Luke Donald er efstur á heimslistanum með 10,75 meðalstig en Lee Westwood er annar með 7,48 meðalstig. Norður-Írinn Rory McIlroy er þriðji skammt þar á eftir. Fjórir Evrópumenn eru meðal tíu efstu kylfingana á listanum, fjórir Bandaríkjamenn og tveir Ástralar.
Sergio Garcia lyfti sér upp um átján sæti eftir frækinn sigur sinn á Castello Masters mótinu um helgina. Hann er nú í 31. sæti en var best í öðru sæti listans fyrir þremur árum.
Staða efstu kylfinga á Heimslistanum:
1. Luke Donald (ENG) 10.75
2. Lee Westwood (ENG) 7.48
3. Rory McIlroy (NIR) 7.31
4. Steve Stricker (USA) 6.24
5. Dustin Johnson (USA) 6.24
6. Martin Kaymer (GER) 6.09
7. Jason Day (AUS) 5.72
8. Adam Scott (AUS) 5.48
9. Matt Kuchar (USA) 5.40
10. Webb Simpson (USA) 5.36
11. Phil Mickelson (USA) 5.26
12. Nick Watney (USA) 5.24
13. KJ Choi (KOR) 4.75
14. Charl Schwartzel (RSA) 4.68
15. Graeme McDowell (NIR) 4.45
16. Bubba Watson (USA) 4.26
17. Justin Rose (ENG) 4.13
18. Hunter Mahan (USA) 4.03
19. David Toms (USA) 4.02
20. Bill Haas (USA) 3.76
Hér má sjá stöðuna á heimslistanum í heild sinni