Hleð inn spilara...


Fréttir | mánudagur 24. október 2011 | 00:27

GolfTV: Sjáðu fuglasyrpuna hjá Donald


Englendingurinn Luke Donald undirstrikaði í gær að hann er besti kylfingur heims þegar hann sigraði á Disney Classic mótinu á PGA-mótaröðinni. Donald lék lokahringinn á átta höggum undir pari og fékk alls tíu fugla á lokahringnum. Hann fékk sex fugla í röð á fyrstu sex holunum á seinni níu holunum og vann að lokum með tveggja högga mun.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá þessi frábæru tilþrif hjá Donald sem með sigrinum tryggði sér einnig tekjutitilinn á PGA-mótaröðinni og stefnir nú allt í að hann verði fyrsti kylfingurinn í sögunni til að verða efstur á tekjulistanum á PGA-mótaröðinni og Evrópumótaröðinni á sömu leiktíð.