Á vellinum með Röggu | föstudagur 2. desember 2005 | 22:23
Æfðu öll högg sem þú kemur til með að þurfa að nota á 18 holum
Í fyrsta lagi er mikilvægt fyrir þig að skipuleggja tímann þinn þannig að unnt sé að æfa öll þau högg sem þú gætir þurft að nota úti á velli. Á þann hátt bætirðu tækni þína og eykur möguleikana til muna á því að komast stórslysalaust frá erfiðum aðstæðum.
Með því að skipuleggja æfingarnar sínar er auðveldara að setja sér markmið og vera á þann háttt mun betur undirbúinn fyrir hvert högg, bæði andlega og líkamlega.
Gættu þess að öll „venjuleg“ högg séu hluti af hefðbundinni æfingarútínu. Mikill hluti ætti að fara í vipp og pitch með hinum ýmsu kylfum (allt frá löngu rúlli upp í lobb-högg), högg úr sandgryfjum og síðast en ekki síst PÚTTIN.
Þessi högg valda kylfingum um víða veröld oft á tíðum ómældum erfiðleikum og skapa há skor. Oft á tíðum er þessum höggum ekki sinnt fyrr en út á völl er komið. Ef þú sinnir stutta spilinu þínu fer höggunum á skorkortinu fækkandi jafnt og þétt.
Þú ættir einnig að eyða tíma í högg frá 80 m -140 m vegna þess að það eru höggin sem eiga að koma boltanum þínum inn á flöt og forða þér frá vandræðum eins og röffi, sandgryfjum og hliðarvatnstorfærum.
Til þess að auka stöðugleika sinn í innáhöggunum (6járn-pw) er skynsamlegt að leggja ekki allt sitt í hvert högg heldur sveifla rólega og yfirvegað, jafnvel halda aðeins neðar um gripið.
Það mun örugglega koma þér á óvart hvað lengdarstjórnun og stefna tekur stakkaskiptum og hvað litlum vegalengdum þú ert að tapa með hverri kylfu þó þú sveiflir rólegar og takir lítið á!
Með því að leggja áherslu á þessi mikilvægu högg ertu í leiðinni að leggja grunninn að lækkaðri forgjöf (og það í hvelli!!)
Þekktu kylfurnar þínar og högglengd þína svo þú sért með á hreinu hvaða kylfa hentar best við hverjar aðstæður, þú gætir þurft að mæla nákvæmlega högglengd þína með hverri kylfu.
Að lokum, en mikilvægt engu að siður: Æfðu dræverinn þinn þannig að þú miðir á nákvæmt markmið(target). Eyddu tíma á æfingasvæðinu í það að sjá fyrir þér högg eins og þú ætlar að framkvæma úti á velli og þá getur verið gott fyrir þig að ímynda þér að þú sért á fyrirfram ákveðinni braut sem þú þekkir. Einbeittu þér jafn mikið að stöðugleika eins og því að slá langt.
Æfðu þig á sama hátt með 3-trénu þínu. 3-tréð er gott að hafa tiltækt ef driverinn ætlar að stríða þér þegar út á völl er komið. Ef svo er slakaðu þá á og notaðu þá kylfu sem þú treystir best í hvert skipti.
Notaðu sömu rútínu fyrir hvert högg á æfingasvæðinu eins og þú gerir þegar þú spilar völlinn, mundu! Gæði umfram magn.
Þú ættir aldrei að lenda í aðstöðu úti á velli þar sem þú segir við sjálfan þig, hvernig í andsk...... á ég að fara að þessu. Þú skalt æfa öll möguleg og ómöguleg högg því undir erfiðum kringumstæðum losar það óneitanlega um spennuna að hafa framkvæmt álíka högg áður.
- kveðja Ragga.