Fréttir | mánudagur 17. október 2011 | 15:12
Lewis upp um 455 sæti á heimslistanum
Englendingurinn Tom Lewis sló í gegn í gær þegar hann sigraði í Portugal Masters mótinu á Evrópumótaröðinni, í aðeins hans þriðja móti sem atvinnumaður. Lewis tekur heljarstökk upp heimslistann í kjölfarið og fer úr 621. sæti heimslistans upp í 166. sæti.
Breska pressan heldur vart vatni yfir frammistöðu Lewis og spáir að þarna sé á ferðinni kylfingur sem gæti gert stóra hluti á næstu árum. Samanburður við Tiger Woods var fljótlega dregin upp. Það tók Woods fimm atvinnumót að ná sínum fyrsta sigri en Lewis aðeins þrjú. Rory McIlroy vann í sínu 38. móti sem atvinnumaður.
Bandaríski kylfingurinn Ben Crane fer upp í 50. sæti á heimslistanum eftir sigur sinn á PGA-mótaröðinni í gær. Hann fer upp um 27 sæti á milli vikna. Webb Simpson er í 12. sæti á heimslistanum eftir frábært gengi að undanförnu.
Staðan á heimslistanum
